„Reykjavíkurflugvöllur“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Luckas-bot (spjall | framlög) m r2.5.2) (robot Bæti við: nl:Luchthaven van Reykjavik |
||
Lína 116: | Lína 116: | ||
[[id:Bandar Udara Reykjavik]] |
[[id:Bandar Udara Reykjavik]] |
||
[[ja:レイキャヴィーク空港]] |
[[ja:レイキャヴィーク空港]] |
||
[[nl:Luchthaven van Reykjavik]] |
|||
[[no:Reykjavík lufthavn]] |
[[no:Reykjavík lufthavn]] |
||
[[pl:Port lotniczy Reykjavík]] |
[[pl:Port lotniczy Reykjavík]] |
Útgáfa síðunnar 25. desember 2010 kl. 14:35
64°07′48″N 021°56′26″V / 64.13000°N 21.94056°V
Reykjavíkurflugvöllur | |||
---|---|---|---|
Reykjavíkurflugvöllur séður frá Öskjuhlíð. | |||
Reykjavíkurflugvöllur séður frá Öskjuhlíð. | |||
IATA: RKV – ICAO: BIRK | |||
Yfirlit | |||
Gerð flugvallar | Almennur | ||
Eigandi | Íslenska ríkið | ||
Rekstraraðili | Flugstoðir | ||
Þjónar | Reykjavík | ||
Staðsetning | Vatnsmýri í Reykjavík | ||
Hæð yfir sjávarmáli | 14 m / 45 fet | ||
Hnit | 64°07′48″N 021°56′26″V / 64.13000°N 21.94056°V | ||
Heimasíða | flugstodir.is | ||
Flugbrautir | |||
Stefna | Lengd | Yfirborð | |
m | fet | ||
01/19 | 1,567 | 5.141 | Malbik |
06/24 | 960 | 3.150 | Malbik |
13/31 | 1.230 | 4.035 | Malbik |
Tölfræði (2008) | |||
Farþegar | 463.889 | ||
Flughreyfingar | 65.387 | ||
Vöru- og póstflutningar | 1.307 tonn | ||
Heimildir: Flughandbók (AIP) - Ísland[1]
Tölfræði: Flugstoðir Flugtölur 2008[2] |
Reykjavíkurflugvöllur (IATA: RKV, ICAO: BIRK) er flugvöllur í Vatnsmýri í Reykjavík. Flugrekstur hófst þar árið 1919 við mjög frumstæðar aðstæður. Bretar gerðu svo varanlegan flugvöll þar í Síðari heimsstyrjöld sem Íslendingar fengu full yfirráð yfir í stríðslok. Innanlandsflug hefur síðan þá haft miðstöð sína á vellinum og einnig gerðu Loftleiðir út þaðan til 1962 en þá var farið að nota Keflavíkurflugvöll fyrir millilandaflug.
Árið 2008 fóru 426.971 flugfarþegar um völlinn í innanlandsflugi og 36.918 í millilandaflugi (Grænland og Færeyjar).[2]
Deila um staðsetningu
Lengi hafa staðið nokkrar deilur um flugvöllinn og staðsetningu hans. Andstæðingar hans benda á mikla nálægð við byggð og víðáttumikið byggingarlandið sem fer undir völlinn. Fylgismenn vallarins segja hann vera stóran vinnustað og nauðsynlegan til þess að Reykjavík geti sinnt sínu hlutverki sem höfuðborg landsins. Flugvöllurinn er á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar til 2016 en framhaldið eftir það er óljóst. Þann 17. mars 2001 var haldin atkvæðagreiðsla í Reykjavík um framtíð flugvallarins. Þátttakan var dræm en naumur meirihluti gildra atkvæða var fyrir því að völlurinn myndi víkja eftir 2016. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru ekki bindandi fyrir borgaryfirvöld. Niðurstöðurnar voru sem hér segir:[3][4]
„Vilt þú að flugvöllur verði í Vatnsmýri eftir árið 2016 eða vilt þú að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri eftir árið 2016?“ | ||
---|---|---|
Svar | Atkvæði | % |
I - Flugvöllur verði í Vatnsmýri eftir árið 2016 | 14.529 | 48,1 |
II - Flugvöllur fari úr Vatnsmýri eftir árið 2016 | 14.913 | 49,3 |
Auðir og ógildir | 777 | 2,6 |
Alls | 30.219 | 100,00 |
Kjörskrá og kjörsókn | 81.258 | 37,2 |
Myndasafn
-
Inngangur
-
Þjónustuborð