Edward Jenner
Útlit
Edward Jenner (17. maí 1749 – 26. janúar 1823) var enskur sveitalæknir sem uppgötvaði bólusetningu gegn bólusótt með því að nota vægt afbrigði kúabóluveirunnar. Hann kom með þá tilgátu að vökvi sem mjaltakonur fengu úr sárum eftir kúabólu verndaði þær gegn bólusótt. Hann prófaði þessa tilgátu sína árið 1796 á ungum dreng og sýndi fram á að aðferðin skapaði ónæmi fyrir bólusótt.