Fyrirbærafræði andans
Útlit
Fyrirbærafræði andans (Phänomenologie des Geistes) (1807) er heimspekilegt ritverk eftir þýska heimspekinginn G.W.F. Hegel (1770 - 1831). Það er almennt talið mikilvægasta ritverk Hegels og þýsku hughyggjunnar eftir Kant.
Hegel leit sjálfur á verkið sem undirstöðu seinni verka sinna. Í því kannar hann eðli og þróun andans, sýnir hvernig hann þróast í genum ferli sem einkennist af innri mótsögnum, sem kallast þrættir. Hegel rekur þróun mannsandans frá frumstæðu upphafi hans í skynreynslu í gegnum öll form huglægni og hlutlægni, m.a. í listum, trúarbrögðum og heimspeki, til altækrar þekkingar, sem felur allt þróunarferlið í sér sem hluta af sjálfri sér. Þar með setur hann einnig fram altækt frumspeki-, siðfræði- og stjórnspekikerfi.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Phenomenology of Spirit“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 7. apríl 2006.